Hoppa yfir valmynd
Úrskurðarnefnd velferðarmála - Atvinnuleysistryggingar og vinnumarkaðsaðgerðir

Mál nr. 693/2021 - Úrskurður

 

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 693/2021

Fimmtudaginn 31. mars 2022

A

gegn

Vinnumálastofnun

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.

Með kæru, dags. 26. desember 2021, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 18. nóvember 2021, um að fella niður rétt hans til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti um atvinnuleysisbætur hjá Vinnumálastofnun 11. nóvember 2019 og var umsóknin samþykkt 4. desember sama ár. Þann 25. október 2021 var kærandi boðaður í viðtal hjá Vinnumálastofnun sem fara átti fram daginn eftir. Kæranda var greint frá því að um skyldumætingu væri að ræða og að ótilkynnt forföll kynnu að leiða til sviptingar atvinnuleysisbóta. Kærandi mætti ekki í boðað viðtal og boðaði ekki forföll. Með bréfi Vinnumálastofnunar, dags. 11. nóvember 2021, var óskað eftir skriflegri afstöðu kæranda til þess að hafa ekki mætt í boðað viðtal. Skýringar bárust frá kæranda samdægurs. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 18. nóvember 2021, var kæranda tilkynnt að bótaréttur hans væri felldur niður í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála þann 26. desember 2021. Með bréfi, dags. 4. janúar 2022, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst með bréfi, dags. 15. febrúar 2022, og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 18. febrúar 2022. Athugasemdir bárust ekki.

II.  Sjónarmið kæranda

Í kæru til úrskurðarnefndar greinir kærandi frá því að hann vilji fá aftur atvinnuleysisbætur sínar.   

III.  Sjónarmið Vinnumálastofnunar

Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að þann 25. október 2021 hafi kærandi fengið smáskilaboð og tölvupóst þar sem hann hafi verið boðaður á fund á þjónustuskrifstofu stofnunarinnar á höfuðborgarsvæðinu þann 26. október 2021. Boðið hafi verið sent á ensku og íslensku. Kæranda hafi verið bent á að um skyldumætingu væri að ræða og að öll forföll þyrfti að boða, án ástæðulausrar tafar. Athygli kæranda hafi verið vakin á því að ótilkynnt forföll kynnu að leiða til stöðvunar greiðslna eftir viðeigandi ákvæðum laganna. Fyrir liggi að kærandi hafi ekki mætt í boðað viðtal og hafi ekki boðað forföll innan gefinna tímamarka. Þann 1. nóvember 2021 hafi fulltrúi Vinnumálastofnunar reynt að hafa samband við kæranda í gegnum síma. Því símtali hafi ekki verið svarað.

Þann 10. nóvember 2021 hafi Vinnumálastofnun kallað eftir skýringum kæranda vegna höfnunar á þátttöku í vinnumarkaðsúrræði. Í erindi til kæranda hafi verið vakin athygli á 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Kærandi hafi haft samband við þjónustuver stofnunarinnar þann 11. nóvember 2021 þar sem hann hafi greint frá því að hann væri búsettur á B en ekki í Reykjavík. Kæranda hafi þá verið leiðbeint um að hann þyrfti að skila skriflegum skýringum. Mál kæranda hafi verið flutt til viðeigandi þjónustuskrifstofu. Skýringar hafi borist frá kæranda sama dag. Þar hafi kærandi greint frá því að hann hefði verið veikur á viðtalsdeginum, auk þess sem hann hafi ekki haft bíl til umráða til að ferðast frá B til Reykjavíkur. Með erindi, dags. 18. nóvember 2021, hafi kærandi verið upplýstur um að það væri mat stofnunarinnar að skýringar hans teldust ekki gildar í skilningi laga um atvinnuleysistryggingar og að bótaréttur hans hafi verið felldur niður í tvo mánuði, sem ella hefðu verið greiddar atvinnuleysisbætur fyrir.

Lög nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar gildi um atvinnuleysistryggingar launamanna eða sjálfstætt starfandi einstaklinga á innlendum vinnumarkaði þegar þeir verði atvinnulausir, sbr. 1. gr. laganna. Mál þetta lúti að ákvörðun Vinnumálastofnunar um að stöðva greiðslur atvinnuleysistrygginga í tvo mánuði til kæranda þar sem hann hafi hvorki mætt á boðaðan fund hjá Vinnumálastofnun né boðað forföll.

Samkvæmt a-lið 13. gr. og g-lið 1. mgr. 14. gr. laga um atvinnuleysistryggingar sé eitt af skilyrðum fyrir atvinnuleysistryggingum launamanna að viðkomandi sé virkur í atvinnuleit og í því felist meðal annars að hafa vilja og getu til að taka þátt í þeim vinnumarkaðsaðgerðum sem standi til boða. Í 13. gr. laga nr. 55/2006 um vinnumarkaðsúrræði komi einnig fram skylda þess sem teljist tryggður samkvæmt lögum um atvinnuleysistryggingar til að taka þátt í vinnumarkaðsúrræðum og mæta í viðtöl hjá ráðgjöfum Vinnumálastofnunar. Ákvæðið sé svohljóðandi: 

„Atvinnuleitandi skal fylgja eftir áætlun um atvinnuleit og þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsúrræðum skv. 11. gr. og gera það sem í hans valdi stendur til að bæta vinnufærni sína til þess að verða virkur þátttakandi á vinnumarkaði. Þar á meðal skal atvinnuleitandi ávallt mæta í viðtöl til ráðgjafa Vinnumálastofnunar skv. 14. gr. og taka þátt í þeim vinnumarkaðsúrræðum er standa honum til boða. Atvinnuleitandi skal jafnframt tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á vinnufærni hans eða aðstæðum að öðru leyti án ástæðulausrar tafar.“

Í 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar segi svo:

„Sá sem hafnar þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum, sbr. lög um vinnumarkaðsaðgerðir, samkvæmt ákvörðun Vinnumálastofnunar eftir að hafa verið í atvinnuleit í a.m.k. fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila, sbr. þó 4. mgr. Hið sama gildir þegar hinn tryggði mætir ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma skv. 6. mgr. 9. gr., 3. mgr. 13. gr. eða 3. mgr. 18. gr.“

Fyrir liggi að kærandi hafi ekki mætt á boðaðan fund á þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar þann 26. nóvember 2021 en honum hafi verið send boðun í tölvupósti og uppgefið símanúmer þann 25. nóvember, eða með rúmlega 24 klukkustunda fyrirvara. Þá liggi fyrir að kærandi hafi ekki boðað forföll. Í skýringum kæranda til Vinnumálastofnunar segi að kærandi hafi verið verið veikur þann dag sem fundurinn hafi átt að fara fram, auk þess sem hann hafi ekki haft bíl til að komast frá B til Reykjavíkur þar sem hann væri nú búsettur.

Í ljósi þess að rík skylda hvíli á umsækjendum um atvinnuleysisbætur til þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum og að tilkynna Vinnumálastofnun um allar þær breytingar sem verði á högum þeirra, sé það sé mat Vinnumálastofnunar að skýringar þær sem kærandi hafi fært fram teljist ekki gildar í skilningi laga um atvinnuleysistryggingar. Með því að mæta ekki á þjónustuskrifstofu stofnunarinnar hafi kærandi brugðist skyldum sínum samkvæmt 58. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar, enda hafi hann hvorki brugðist við boðun Vinnumálastofnunar né tilkynnt um forföll þegar hann hafi verið boðaður til fundar hjá stofnuninni. Að auki hafi kærandi ekki tilkynnt um breytingar á heimilisfangi sínu til stofnunarinnar.

Með vísan til framangreindra sjónarmiða sé það afstaða Vinnumálastofnunar að kærandi skuli sæta niðurfellingu bótaréttar á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

IV.  Niðurstaða

Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.

Í 58. gr. laga nr. 54/2006 er kveðið á um viðurlög við því ef þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum er hafnað. Segir þar í 1. mgr. að sá sem hafnar þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum, sbr. lög um vinnumarkaðsaðgerðir, samkvæmt ákvörðun Vinnumálastofnunar eftir að hafa verið í atvinnuleit í að minnsta kosti fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur, skuli ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta samkvæmt VII. kafla laganna fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila. Hið sama gildir þegar hinn tryggði mætir ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma samkvæmt 6. mgr. 9. gr., nú 7. mgr. 9. gr., 3. mgr. 13. gr. eða 3. mgr. 18. gr. laganna.

Í athugasemdum greinargerðar við frumvarp það er varð að lögum nr. 134/2009, um breytingu á lögum nr. 54/2006, segir meðal annars um viðurlög við að virða ekki boðun Vinnumálastofnunar:

„Í ljósi þess að mikilvægt er að Vinnumálastofnun geti haldið reglulegu sambandi við þá sem fá greiddar atvinnuleysisbætur, ekki síst til að geta fylgst með gangi atvinnuleitar og hvort stofnunin þurfi að koma að frekari stuðningi við viðkomandi, er lagt til að það kunni að varða viðurlögum á grundvelli laganna í þeim tilvikum er atvinnuleitendur virða ekki boðun stofnunarinnar skv. 1. gr. frumvarps þessa. Á þetta ekki síst við þegar fá störf eru í boði og auknar líkur eru á að atvinnuleitin dragist á langinn. Jafnframt er lagt til að sama gildi þegar atvinnuleitendur eru boðaðir til stofnunarinnar í því skyni að kanna hvort sá hinn sami uppfylli enn skilyrði laganna, sbr. 4. og 6. gr. frumvarps þessa. Er því gert ráð fyrir að sömu viðurlög komi til og eiga við þegar þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum er hafnað.“

Í 7. mgr. 9. gr. kemur fram að sá sem telst tryggður á grundvelli laganna skuli eftir að umsókn hans hafi verið samþykkt og á þeim tíma sem hann fái greiddar atvinnuleysisbætur eða sæti biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögunum hafa reglulegt samband við Vinnumálastofnun eftir nánara fyrirkomulagi sem stofnunin ákveði. Þegar Vinnumálastofnun upplýsi umsækjanda um að stofnunin hafi samþykkt umsókn um atvinnuleysisbætur skuli hún jafnframt upplýsa hlutaðeigandi um með hvaða hætti stofnunin muni koma upplýsingum eða öðrum boðum til hans meðan á atvinnuleit hans standi. Komi Vinnumálastofnun upplýsingum eða boðum til umsækjanda með þeim hætti sem stofnunin hafi tiltekið við hlutaðeigandi teljast upplýsingarnar eða boðin hafa borist með sannanlegum hætti.

Þá segir í 3. mgr. 13. gr. laga nr. 54/2006 að Vinnumálastofnun sé heimilt að boða þann tryggða til stofnunarinnar með sannanlegum hætti á þeim tíma sem hann fái greiddar atvinnuleysisbætur eða sæti biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögunum, meðal annars til að kanna hvort breytingar hafi orðið á högum hans sem kunni að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögunum. Hinn tryggði skuli þá vera reiðubúinn að mæta til stofnunarinnar með mjög skömmum fyrirvara.

Samkvæmt 2. mgr. 14. gr. laga nr. 54/2006 skal hinn tryggði tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á vinnufærni hans eða aðstæðum að öðru leyti samkvæmt 1. mgr., þar á meðal hvort hann hafi heilsu til að taka starfi eða taka þátt í virkum vinnumarkaðsaðgerðum, sbr. b-lið 1. mgr. Þá segir í 4. mgr. 14. gr. laganna að hinn tryggði skuli tilkynna um upphaf og lok veikinda til Vinnumálastofnunar, án ástæðulausrar tafar.

Samkvæmt gögnum málsins var kærandi þann 25. október boðaður í viðtal á þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar á höfuðborgarsvæðinu sem átti að fara fram þann 26. október klukkan 13:00. Tekið var fram að um skyldumætingu væri að ræða og að öll forföll bæri að tilkynna án tafar. Þá var kæranda bent á að ótilkynnt forföll gætu valdið sviptingu greiðslna eftir viðeigandi ákvæðum laganna. Kærandi mætti ekki á boðuðum tíma og tilkynnti ekki forföll. Kærandi hefur borið því við að hann hafi verið veikur á umræddum degi og ekki haft bíl til að komast frá B þar sem hann sé búsettur og til Reykjavíkur. Samkvæmt gögnum málsins tilkynnti kærandi Vinnumálastofnun ekki um breytt aðsetur eða veikindi.

Í máli þessu liggur fyrir að kærandi var boðaður til Vinnumálastofnunar með sannanlegum hætti, þ.e. með tölvupósti, smáskilaboðum og skilaboðum á „Mínum síðum“. Að mati úrskurðarnefndar velferðarmála hefur kærandi ekki fært fram viðunandi skýringar sem réttlæta að hann hafi ekki mætt í boðað viðtal hjá Vinnumálastofnun. Í 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 kemur skýrt fram að sá sem hafnar þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum skuli sæta viðurlögum á grundvelli ákvæðisins og hið sama gildi þegar hinn tryggði mætir ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma. Ákvæðið er fortakslaust og því er ekki heimilt að beita vægari úrræðum en þar er kveðið á um.

Með vísan til framangreinds er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006, staðfest.


 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 18. nóvember 2021, um að fella niður rétt A, til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði, er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir

 

 

 

 

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum